|
ISLEX
orðabókin
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
|
||
|
Myndir
Orð vikunnar
Velkomin á heimasíðu veforðabókarinnar ISLEX ISLEX er margmála orðabókarverk á vefnum með íslensku sem viðfangsmál og sænsku, norskt bókmál, nýnorsku og dönsku sem markmál. ISLEX er samstarfsverkefni fjögurra stofnana á Íslandi, í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Þær eru Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (SÁ) í Reykjavík, Det Danske Sprog- og Litteraturselskab í Kaupmannahöfn, Institutt for lingvistiske, litterære og estetiske studier við Háskólann í Bergen og Institutionen för svenska språket við Háskólann í Gautaborg. Íslenska ritstjórnin ber ábyrgð á viðfangsmálinu og mótun og þróun gagnagrunnsins fyrir ISLEX, en vinna við markmálin er í umsjón og á ábyrgð ritstjórna í hverju landi fyrir sig. Fróðskaparsetur Føroya hóf þátttöku í verkefninu árið 2011 og er stefnt að því að opna íslensk-færeyska orðabók á árinu 2013. Háskólinn í Helsinki varð svo aðili að samstarfinu í ársbyrjun 2013. Orð vikunnarKennsluefni unnið hjá Flensborgarskóla |
||